Foreldraráð er kosið á foreldrafundum leikskólans. Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsaginr til leikskólans og til nefndar um skólanámsskrá og aðrar áætlanir sem varðar starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annara áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum.
Fréttir frá foreldraráði
FORELDRARÁÐ 2014-2015
Þann 7.október var haldinn foreldrafundur í Hlíð. Var tilefnið að kjósa í foreldraráð leikskólans.
Fundurinn var fámennur en góðmennur.
Í foreldráð voru kosin: Guðrún Björg Ragnarsdóttir, Margrét Vala Gylfadóttir og Svavar Knútur Kristinsson/Líney Úlfarsdóttir.
Margrét Vala kemur ný inn í foreldraráðið, aðrir gáfu kost á sér til áframhaldandi setu.Þann 7.október var haldinn foreldrafundur í Hlíð. Var tilefnið að kjósa í foreldraráð leikskólans.
Foreldraráð- fundargerð 27.janúar 2014
Fundargerð foreldraráðs Hlíðar mánudaginn 27. Janúar 2014 kl. 17.10
Mætt:
Svavar Knútur
Una
Elísabet leikskólastjóri
Til umræðu:
Kynning á hlutverki foreldraráðs og reglum og vinnulagi vegna starfs ráðsins.
Ákvörðun um tímabil sumarfrís leikskólans.
Eftir stutta umræðu var tekin ákvörðun í samráði við leikskólastjóra að sumarfrí á Hlíð verði frá og með 9. Júlí til og með 6. Ágúst.
Hefst því skólastarf eftir sumarfrí á fimmtudeginum eftir verslunarmannahelgi.
Þetta er í ljósi þess að heimtur á bæði starfsfólki og börnum eru frekar lélegar þar til nokkrum dögum eftir verslunarmannahelgi og er ráðið meðvitað um mikilvægi þess að ná góðri nýtingu úr jafnt frídögum sem starfsdögum.
Eftir þessa ákvörðun var farið stuttlega yfir hlutverk og starfsemi foreldraráðs.
Fundi slitið kl. 17.40
Fundargerðir
· Garðarnir komu til umræðu. Sumum fannst garðurinn Eskihlíðarmegin vera frekar subbulegur legur og lítt spennandi (var endurnýjaður fyrir rúmum 8 -10 árum). Spurning hvort ekki væri hægt að lappa eitthvað upp á hann. Taka t.d. gaddavírinn sem er uppi á skúrunum og mála bakhliðar skúranna.
· Leikskólastjóri sagið að málið með gaddvírana væri komið í ferli.
· Húsnæðið við Engihlíðina var rætt. Finnst það vera dimmt og litir á veggjum of dökkir, allavega efstu hæðinni.
· Rætt hversu óhentugt og tímafrekt væri fyrir foreldra að þurfa að fara á milli skóla, þ.e.a.s. með börn í báðum húsum.
Stjórnendur ætla að finna lausn með þeim foreldrum sem verða í þessari aðstöðu.
· Sameiningin: Leikskólastjóri sagði frá því að aldursskipting skólanna hafi alltaf verið fyrirséð þegar sameiningin átti sér stað
· Við erum 5. Skólinn af þeim 7 sem eru í þessu ferli
· Rætt var um loftmengun-rykmengun í hverfinu. Það er eins og þetta hverfi sé orðið eitthvað eyland á milli tveggja stofnbrauta. Gæti farið svo í sumar að loftmengun færi alloft yfir leyfileg mörk á góðviðrisdögum – þurfum þá að takmarka útiveruna.
· Stjórnendur skólans sögðu frá fundi sem þeir eru að fara á næsta dag – innritunarfundur, þ.a. að þeim börnum sem eru á biðlista inn í skólann er boðin vist. Það eru c.a. 50 pláss laus í leikskólanum Hlíð núna í haust. Ekki er víst að takist að fylla hann með þeim barnafjölda sem fæddur er 2010 sem er á biðlistanum. Ekki er búið að gefa út hvort megi taka börn fædd 2011 til að fullnægja kröfum um fullnýtingu skólans.
Auður Helga Kristinsdóttir
aðstoðarleikskólastjóri
Fundargerð- foreldraráð
Starfstímabil hópsins er 1.september 2011 – 1.júlí 2012.
2. fundur í foreldraráði 21.mars 2012.
Kynntar voru hugmyndir um sameiningu aldursárganga á milli húsa. Tveir yngstu árgangarnir í öðru húsinu og tveir eldri í hinu húsinu.
3.fundur í foreldraráði 11.apríl 2012